Við höfum eytt mörgum árum í að fullkomna blönduna. Hráefnin okkar hafa verið rannsökuð og mæld í rannsóknarstofum í Þýskalandi, Danmörku og Íslandi til að tryggja að varan innihaldi bestu blöndu hráefna sem í boði er til að tryggja rétt hlutföll af lífrænu joði, Fucoxanthin, Fucoidan, próteini, ómega-3 fitusýrum og A, D2, B1, B3, B2, B12, E & C vítamínum.
Við leituðum lengi að hinum fullkomnu umbúðum sem eru algjörlega endurvinnanlegar og framleiddar úr endurunnu hráefni. Okkur fannst ekki rökrétt að selja okkar framúrskarandi hreinu vöru í plast.
Við erum lítið handverksfyrirtæki sem leggjur mikinn metnað í framleiðsluna. Allur þari sem við notum er handtíndur á merktum svæðum sem fá tíma til að hvíla sig að uppskeru lokinn. Við störfum í sátt og samlyndi við náttúruna með það að markmiði að varðveita auðlindir hafsins fyrir komandi kynslóðir.
ÞARADUFTIÐ er sérstaklega joðríkt og joð stuðlar að eðlilegum vexti barna, eðlilegri vitsmuna starfsemi, efnaskiptum, starfsemi taugakerfis og framleiðslu skjaldkirtilshormóna og starfsemi skjaldkirtilsins.
ÞARAHYLKI eru sérstaklega joðrík og joð stuðlar að eðlilegum vexti barna, eðlilegri vitsmuna starfsemi, efnaskiptum, starfsemi taugakerfis og framleiðslu skjaldkirtilshormóna og starfsemi skjaldkirtilsins.